Fréttir

Meirihluti andvígur fleiri álverum!

21.2.2006

(Frétt á mbl.is þann 21.02.06)

Talsverður meirihluti svarenda í könnun, sem Gallup gerði fyrir Vinstrihreyfinguna-grænt framboð, er andvígur því að ráðist verði í frekari uppbyggingu álvera í landinu. Þá sagðist meirihluti svarenda vetra andvígur því að ráðist verði í nýjar virkjunarframkvæmdir vegna álframleiðslu.

Í könnuninni var spurt tveggja spurninga:

1) Telur þú að stjórnvöld eigi að beita sér fyrir því að byggð verði ný álver á Íslandi á næstu fimm árum eða telur þú að stjórnvöld eigi ekki að beita sér fyrir því?

2) Ertu hlynnt/ur eða andvíg/ur því að ráðist verði í nýjar virkjanaframkvæmdir vegna álframleiðslu á næstu fimm árum?

Fyrri spurninguna svöruðu 62,9% þeirra, sem tóku afstöðu, neitandi en 37,1% svöruðu játandi. Samtals 35,5% aðspurðra sögðust frekar hlynnt eða mjög hlynnt frekari virkjanaframkvæmdum vegna stóriðju en 54,7% sögðust frekar andvíg eða mjög andvíg. 12,8% sögðust hvorki andvíg né hlynnt slíku.

Úrtakið í könnuninni var 1350 manns á öllu landinu á aldrinum 16-75 ára, handahófsvalið úr þjóðskrá. Endanlegt úrtak var 1298 en svarhlutfall var 61,6%.

Könnunin í heild

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica