Fréttir

Sól á Suðurlandi. Fjölmennum í Árnes

10.2.2007

Sól á Suðurlandi gengst fyrir fundi á morgun gegn áformum Landsvirkjunar um þrjár virkjanir með tilheyrandi lónum í neðri hluta Þjórsár, mitt í blómlegum byggðum Suðurlands. Áhrifasvæði þessara framkvæmda nær allt frá Þjórsárdal til sjávar. Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnjúpverjahreppi. Fundartími er á morgun, sunnudaginn 11. febrúar klukkan 15. Við hvetjum alla til að mæta og sýna andstöðu sína við fyrirhugaðar virkjanir.

 

Ekki verður um skipulagðar ferðir að ræða en fólk hvatt til að samnýta bíla eins og kostur er.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica