Stofnfundur UVG á Vesturlandi
Í síðustu viku var stofnað félag Ungra Vinstri grænna á Vesturlandi. Fundurinn var vel sóttur og umræður líflegar eins og vera ber. Stjórnina skipa: Ásmundur Einar Daðason formaður, Jón Örvar Jónsson gjaldkeri, Þórhildur Halla Jónsdóttir ritari og meðstjórnendur eru Einar Á Friðgeirsson og Katrín Lilja Jónsdóttir. Varamenn eru Þóra Bjartmarsdóttir og Finnbogi Vikar Guðmundsson. Gestir fundarins voru alþingismennirnir Jón Bjarnason og Hlynur Hallsson. Ályktanir fundarins eru svohljóðandi:
Jafnrétti til náms óháð búsetu
Ung Vinstri græn á Vesturlandi leggja áherslu á jafnrétti til náms óháð búsetu og fjárhag. Álögur á nemendur í formi skólagjalda, innritunargjalda og efniskostnaðar eru mörgum ofviða. Allir ættu að geta sótt framhaldsmenntun í sinni heimabyggð án þess að flytja búferlum með miklum tilkostnaði eða ferðast langar vegalengdir. Auk þess hvetur fundurinn til átaks í eflingu starfsmenntunar í framhaldsskólum landsins.
Fjölbreytt atvinnulíf í stað einhæfrar stóriðju
Við krefjumst þess að ríkisstjórn Íslands að komi fram með raunhæfa stefnu í byggðamálum þar sem lögð er áhersla á að tryggja fjölbreytt atvinnulíf í stað einhæfrar stóriðjustefnu. Ruðningsáhrif af núverandi stóriðjuframkvæmdum hafa bitnað harkalega á atvinnulífi og búsetuskilyrðum víða um land og eiga aðilar í útflutningsgreinum og ferðaþjónustu erfitt uppdráttar af þeim sökum. Fundurinn lýsir þungum áhyggjum af yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar um að halda áfram á þessari braut og krefst þess að hætt verði við frekari álversframkvæmdir og vatnsaflsvirkjanir sem byggja á uppistöðulónum með tilheyrandi óafturkræfum umhverfisspjöllum. Í stað þeirra skuli stuðla að frekari rannsóknum og þróun á sviði jarðhitatækni og djúpborunum, með það að sjónarmiði að Ísland verði leiðandi í vistvænni, sjálfbærri orkuöflun heima fyrir og erlendis.
Viðurkennum rétt Palestínsku þjóðarinnar
Við skorum á ríkisstjórn Íslands að viðurkenna nýkjörna stjórn Palestínu og vinna að því að palestínska þjóðin fái fullan rétt yfir eigin landi. Virða ber lýðræðislega ákvörðun palestínsku þjóðarinnar í síðastliðnum þingkosningum, að sniðganga þær niðurstöður verður aðeins til að stuðla að frekara ósætti og ófriði. Fundurinn hvetur Alþingi og ríkisstjórn til beita sér fyrir á alþjóðavettvangi, að þau landamæri milli Ísraels og Palestínu sem Sameinuðu þjóðirnar kváðu á um á sínum tíma verði viðurkennd í reynd og Ísraelsmenn hverfi frá ólöglegum landtökubyggðum.

