Málefnakvöld í Kópavogi
Næstkomandi fimmtudagskvöld, 2. mars kl. 18 ? 20, verður haldið þriðja málefnakvöld VG í Kópavogi. Nú verður það haldið í nýju húsnæði félagsins, á 4. hæð að Hamraborg 1. Húsnæði þetta verður svo kosningaskrifstofa VG í Kópavogi næstu mánuði en hún verður formlega opnuð sem slík á næstu vikum, en á fimmtudagskvöld gefst félögum kostur á að berja rýmið augum. Allir eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í málefnavinnu, ásamt því að við óskum eftir hverskyns húsgögnum og áhöldum sem fólk telur sig mega missa eða lána ? sem gæti komið að gagni í nýja húsnæðinu.
Kveðja,
stjórn VG í Kópavogi

