Fréttir
Aðalfundur VG í Rangárvalla- og Skaftafellssýslu
Svæðisfélag Vinstri grænna í Rangárvalla- og Skaftafellssýslum heldur aðalfund sinn á Kaffi Langbrók í Fljótshlíð föstudaginn 3. mars. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um komandi sveitarstjórnarkosningar. Katrín Jakobsdóttir verður sérstakur gestur fundarins sem hefjast mun kl. 20:00.

