Samfylkingin:
Björn Valur Gíslason, varaþingmaður Vinstri grænna hóf umræðu á Alþingi áðan um skólagjöld og afstöðu Samfylkingarinnar til þeirra. Tilefni umræðunnar voru ummæli formanns menntamálanefndar, Sigurðar Kára Kristjánssonar að sífellt fleiri Samfylkingarmenn væru sammála Sjálfstæðismönnum um að leyfa beri skólagjöld í opinberum skólum. Reyndar gekk Sigurður Kári svo langt í umræðunum á Alþingi að telja alla flokka vilja leyfa skólagjöld í opinberum skólum nema Vinstri græn og að skólagjöld væru forsenda þess að hægt væri að reka góða skóla. Katrín Júlíusdóttir þingkona Samfylkingarinnar var ósátt við ummæli Sigurðar Kára og greindi frá stefnu flokks síns sem er skýr – skólagjöld skulu ekki leyfð í opinberum skólum. Á máli hennar var að heyra að þessi stefna sé ekki umsemjanleg eins og svo margt annað í stefnu Samfylkingarinnar. Einar Már Sigurðsson varaformaður Samfylkingarinnar skýrði frá þeirri skoðun sinni að „nálgast bæri umræðuna um skólagjöld fordómalaust“. Erfitt er að sjá hvernig nálgast eigi umræðuna fordómalaust án þess að til greina komi að leggja á skólagjöld.
Kolbrún Halldórsdóttir benti á að misrétti ríkti milli einkaskóla og opinberra skóla. Einkaskólar fengju fullt framlag með hverjum nemenda en rukkuðu þar að auki inn skólagjöld sem væru niðurgreidd af Lánasjóði íslenskra námsmanna í formi lágra vaxta. Þannig hafi ríkið í raun stutt við einkaskóla hér á landi á sama tíma og opinberum skólum er haldið við sultarmörk.
Ljóst er að umræða um skólagjöld verður mikil á næstu misserum og Vinstrihreyfingin – grænt framboð eini flokkurinn sem stendur almennilega í lappirnar í þeim málum eins og svo mörgum öðrum. Ríkisstjórnarflokkarnir tala hins vegar út og suður.

