Fréttir

Fundur um framboðslista VG á Akureyri

13.3.2006

Vinstrihreyfingin - grænt framboð á Akureyri boðar til félagsfundar mánudaginn 13. mars klukkan 20:00 í húsnæði VG að Hafnarstræti 98 á Akureyri.

 

Þar verður tillaga kjörstjórnar að framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar sem fram fara þann 27. maí nk. kynnt og borin undir atkvæði. Nýir félagar eru velkomnir.

 

Nú þegar hefur verið kynnt tillaga kjörstjórnar fyrir sex efstu sæti lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri.
Hún er svohljóðandi:


1. Baldvin H. Sigurðsson, matreiðslumeistari 
2. Kristín Sigfúsdóttir, umhverfisfræðingur og kennari við MA 
3. Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir, nemi í kennaradeild HA og sundþjálfari 
4. Jón Erlendsson, starfsmaður á hönnunardeild Vegagerðarinnar á Akureyri ogvarabæjarfulltrúi
5. Baldvin Esra Einarsson, nemi í viðskiptadeild HA  6. Lilja Guðmundsdóttir, nemi í VMA

 

Hallur Gunnarsson  8620416 er formaður kjörstjórnar VG á Akureyri

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica