Rætt um landið og miðin á fundum gærdagsins
Í gær voru haldnir tveir fundir í fundaröð Vinstri grænna um efnahagsmál. Góð mæting var á fundinn sem haldinn var á Kaffihúsinu í Skrúðgarðinum á Akranesi. Þau Ögmundur Jónasson og Katrín Jakobsdóttir fluttu framsögur. Mikið var fjallað um siðferði og skynsemi í efnahagsmálum, útrás undanfarinna ára og afleiðingarnar sem við glímum við í dag. Að sjálfsögðu voru samgöngumál ofarlega á dagskrá og rætt var brýnt hagsmunamál Akurnesinga að afnema gjaldtöku í Hvalfjarðargöngin til að jafna aðstöðu og aðgengi fólks milli staða. Umhverfismál og verndun hafsins voru líka ofarlega í hugum fólks.
Í Vík í Mýrdal fluttu þær Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Svandís Svavarsdóttir framsögur og var fólki þar efst í huga versnandi kjör á landsbyggðinni og erfiða samkeppnisstöðu minni fyrirtækja. Fólk var uggandi yfir áhrifum efnahagsástandsins á atvinnulíf og kjör í dreifðari byggðum. Þá var rætt mikið almennt um misskiptinguna í samfélaginu og hvernig megi auka jöfnuð.
Í kvöld verða fundir í Garðabæ og á Sauðárkróki, sjá skipulag funda hér.

