Utanríkismálanefd sniðgengin
Á fundi utanríkismálanefndar sl. mánudag óskað fulltrúi Vinstri grænna Steingrímur J. Sigfússon eftir því að utanríkisráðherra kæmi til fundar við nefndina áður en hún og forsætisráðherra færu á NATO-fundinn í Búkarest þannig að nefndinni gæfist kostur á að ræða og koma sjónarmiðum á framfæri varðandi þá afstöðu sem þar yrði tekin fyrir Íslands hönd. Á dagskrá fundarins verða mörg stórpólitísk og umdeild mál eins og möguleg NATO aðild Úkraínu og Georgíu, eldflaugavarnakerfi Bandaríkjamanna í Mið- og Austur Evrópu, málefni Afganistan o.fl. Minna má á lögbundna samráðsskyldu ríkisstjórnar við utanríkismálanefnd Alþingis í þessu sambandi.
Ekki gat orðið af slíkum samráðsfundi og þegar til reglubundins fundar utanríkismálanefndar kom í morgun, voru forsætis- og utanríkisráðherra þegar á leið úr landi með flugvél. Nefndarmenn fengu í hendur minnisblað um viðfangsefni fundarins sem trúnaðarmál.
Af þessu tilefni lagði fulltrúi VG fram meðfylgjandi bókun.
Undirritaður harmar að ekki gafst kostur á að hitta utanríkisráðherra áður en ráðherra fór til fundarins. Það eru vonbrigði að haldið skuli óbreyttum hætti að utanríkismálanefnd fái fyrst fréttir af því eftirá og yfirleit erlendis frá hvaða afstöðu fulltrúar Íslands hafa til umdeildra og stórpólitískra deilumála á vettvangi NATO og hvar í sveit landinu er skipað.
Undirritaður telur afar varhugavert að Ísland fylgi bandarískri harðlínustefnu þegar kemur að viðkvæmum samskiptamálum í Mið- og Austur-Evrópu eins og fljótræðislegum og illa undirbúnum áformum um aðild Úkraínu og Georgíu að NATO og uppsetningu bandaríska eldflaugavarnakerfisins.
Steingrímur J. Sigfússon, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í utanríkismálanefnd

