Fréttir

Tillögur VG í efnahagsmálum

25.3.2008

Meginmarkmið tillagna Vinstri grænna er að endurheimta efnahagslegan stöðugleika, verja söðu heimilanna og kaupmátt launa.

Í því skyni leggja Vinstri græn meðal annars til:

  • húsaleigu- og vaxtabætur verði stórauknar
  • komugjöld og sjúklingaskattar í heilbrigðiskerfinu verði afnumin
  • skólagjöld í opinberum skólum verði afnumin
  • kjör elli- og örorkulífeyrisþega verði stórbætt
  • að hið opinbera bjóði skattfrjálsan sparnað
  • bæta fjárhagsstöðu sveitarfélaga um 5 milljarða gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
  • að verja allt að 5 milljörðum til eflingar byggðarlaga sem glíma við samdrátt meðal annars til að skapa konum störf, vinna gegn kynbundnum launamun og búferlaflutningum.
  • að verja 3 milljörðum til að auka fjölbreytni og nýsköpun í atvinnumálum, styðja við ferðaþjónustu og landbúnað og byggja upp þjóðgarða.
  • stöðva stóriðju- og stórframkvæmdir en grípa þess í stað til aðgerða á sviði umhverfis- og velferðarmála
  • auka gjaldeyrisvaraforðann og styrkja eigið fé Seðlabankans með innlendu skuldafjárútboði.
  • að setja á stofn Þjóðhagsráð sem veitir stjórnvöldum ráðgjöf, metur framvindu og horfur í þjóðarbúskapnum og gefur mánaðarlega álit um stöðu mála.
  • leggja grunn að sjálfbærri þróun í orkubúskap landsmanna.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica