Fréttir

VG í Skagafirði: Uppbygging og framtíð Hólaskóla

14.3.2008

holar_i_hjaltadal
holar_i_hjaltadal

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði haldinn í Héðinsminni 10. mars 2008, skorar á stjórnvöld að standa vörð um Hólaskóla, Háskólann á Hólum sem sjálfstætt menntasetur í þjóðareigu eins og hann hefur verið um aldir. Skólinn hefur lengi gengt þýðingarmiklu hlutverki og hefur verið stöðugur uppgangur í starfi hans í hartnær þrjá áratugi. Með þeim stuðningi sem honum ber mun skólinn halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum.

Fundurinn mótmælir harðlega hugmyndum um einkavæðingu skólans og að hann verði látinn í hendur einstakra fyrirtækja eins og stjórnendur fyrirtækjasamsteypu Kaupfélags Skagfirðinga sækja á um. Með slíku væri vegið að framtíð Hólaskóla og Hólastaðar. Mikilvægt er að óvissu um rekstur skólans verði eytt hið fyrsta og stjórnvöld einhendi sér í að standa með myndarlegum hætti að áframhaldandi uppbyggingu Hólaskóla, Háskólans á Hólum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica