Fréttir

Ályktun VGR

21.3.2006

Um leið og stjórn Vinstri grænna í Reykjavík fagnar fyrirhugaðri brottför bandaríska hersins er hvatt til markvissra aðgerða til atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum. Ljóst er að samdráttur í atvinnustarfsemi bitnar ekki eingöngu á Suðurnesjum heldur mun stærra atvinnusvæði því fjöldi starfsmanna á Keflavíkurflugvelli sækir vinnu frá Reykjavík og nágrenni. Vinstri græn hvetja til stefnumörkunar sem býr í haginn fyrir fjölbreytni í atvinnuuppbyggingu og hafnar að sama skapi frekari uppbyggingu stóriðju.


Vinstri - græn ítreka fyrri áherslur fulltrúa hreyfingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og borgarstjórn um að hvers kyns áform um orkusölu til stóriðju verði skoðuð heildstætt með hagsmuni allrar þjóðarinnar og náttúru Íslands að leiðarljósi. Framtíðaráform um raforkuframleiðslu þurfa öll að byggja á varúðarnálgun og á grundvelli samþykktrar og fullkláraðrar   Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.


Fyrir fáum mánuðum ákvað stjórn O.R. að taka ekki þátt í áformum um orkusölu til álvers í Helguvík og stendur sú samþykkt óhögguð.  Í þessu ljósi er fráleitt að stjórnarformaður O.R. vilji nú hafa forgöngu um frekari skuldbindingar um orkusölu til nýrrar stóriðjuframleiðslu á svæðinu án samráðs við stjórnina eða borgarstjórn.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica