Fréttir

Stefnumót við Hjörleif

25.3.2006

Málþing til heiðurs Hjörleifi Guttormssyni og hans störfum er á morgun, laugardaginn 25 mars. Málþingið er haldið í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6, Reykjavík, og hefst kl. 13:00. Til málþingsins boða Ferðafélag Íslands, Hið íslenska náttúrufræðifélag, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Austurlands, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, Náttúruverndarsamtök Suðurlands, Samtök um vernd hálendis Austurlands, Náttúruverndarsamtök Vesturlands og Náttúruvaktin.

 

Dagskrá:

 

Kl. 13.00 Opnunarávarp

Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands.

 

Kl. 13.10 Fyrri hluti: Óbyggðir Íslands - nútíð og framtíð:

            1. Óbyggðir Íslands. Árni Bragason forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar fjallar um þjóðgarða og verndarsvæði.

            2. Bæði fugl og fiskur. Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur bregður upp sýn á hálendisþjóðgarð.

            3. Draumalandið Andri Snær Magnason fjallar um náttúruna andspænis raunveruleikanum, Britney Spears andspænis Kárahnjúkavirkjun. Eða eitthvað

allt annað.

 

Kl. 14:45 ? 15:15 Kaffihlé

 

Kl. 15:15 Síðari hluti: Alþjóðlegt samstarf og náttúruvernd á norðurslóðum.

            1. Líffræðileg fjölbreytni og heimsskautasvæðin. Skúli Skúlason rektor í Hólaskóla.

            2. Loftslagsbreytingar og norðurslóðir. Árný Erla Sveinbjörnsdóttir, Háskóla Íslands, segir frá rannsóknum á borkjörnum úr Grænlandsjökli og fléttar saman við umræðu um loftslagsbreytingar af mannvöldum.

            3. Veiðarfæri og sjálfbær nýting hafsins. Sigmar A. Steingrímsson Hafrannsóknarstofnun Íslands. Vistkerfi hafsbotnsins og verndun þeirra jafnt á Íslandsmiðum sem og á úthafinu.

 

Kl. 16:50 Hjörleifur Guttormsson ávarpar

    Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður ávarpar

                og VG býður upp á veitingar.

 

Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica