Framkvæmdastýra SF í Danmörku á flokksráðsfundi Vinstri grænna
Turid Leirvoll, framkvæmdastýra Socialistisk Folkeparti í Danmörku mætir á flokksráðsfund Vinstri grænna um helgina og segir frá kosningabaráttu dönsku félaga okkar. Danir gengu að kjörborði 13. nóvember síðastliðinn en þá tvöfaldaði SF fylgi sitt og var ótvíræður sigurvegari kosninganna. Flokkinum tókst einkar vel að ná til ungs fólks og kom áherslum sínum vel til skila í snarpri kosningabaráttu en boðað var til kosninga með þriggja vikna fyrirvara.
Flokksráðsfundur Vinstri grænna er haldinn á Loftleiðum dagana 22. – 23. febrúar og mun Turid halda fyrirlestur sinn og svara fyrirspurnum klukkan 10:30 á laugardeginum. Turid tók við framkvæmdastjórn flokksins árið 2002 en áður var hún framkvæmdastýra Socialistisk Vensterparti í Noregi í átta ár. Það er því óhætt að segja að Turid hafi yfirgripsmikla reynslu í stjórnmálastarfi systurflokkanna á Norðurlöndum. Allir félagar í Vinstri grænum eru hjartanlega velkomnir.


