Vel sóttur stjórnmálafundur á Akureyri
Þingmennirnir Þuríður Backman og Steingrímur J. Sigfússon voru á kröftugum fundi á Bláu könnunni fimmtudaginn 14. febrúar. Steingrímur hafði reyndar verið þar með annan fund nokkrum vikum áður ásamt bæjarfulltrúum Vinstrihreyfingarinnar græns-framboðs á Akureyri þeim Balvini H. Sigurðssyni og Kristínu Sigfúsdóttur. Báðir fundirnir voru vel sóttir og gaman að sjá nýtt og áhugasamt fólk. Að vísu vantaði tilfinnanlega yngra fólkið í hreyfingunni. Um þriðjungur félaga í VG eru jú yngri en 30 ára.
Steingrímur og Þuríður fóru yfir landsmálin og stöðuna í Þinginu auk málefna kjördæmisins. Dýrleif Skjóldal annar varaþingmaður hreyfingarinnar var fundarstjóri og umræður voru líflegar, aðallega um heilbrigðismál, utanríkismál, umhverfismál, jafnréttismál og sjávarútvegsmálin. Fundargestir lýstu yfir andstöðu sinni við fyrirhugaða einkavæðingu heilbrigðiskerfisins sem nú heitir einhverjum fínni nöfnum en úthýsing eða bara einkæðing. Einnig var rætt um áframhaldandi stóriðju-uppbyggingu þvert á loforð Samfylkingarinnar fyrir kosningar og ófremdarástand í sjávarútvegsmálum. Þá var formennsku Steingríms í jafréttisnefnd Evrópuráðsins fagnað sérstaklega.


