Fréttir

Ung vinstri græn á ferð um Austurland

29.1.2008

UVG_290108
UVG_290108

Ung vinstri græn stóðu fyrir fyrsta stjórnmálaskóla sínum á Egilsstöðum um helgina. Hátt í tuttugu ungliðar komu til að læra og ræða saman um pólitíkina og hvernig henni verður best komið á framfæri.

Leiðbeinendurnir voru nær allir úr röðum Ungra vinstri grænna. Steinunn Rögnvaldsdóttir fór yfir sögu Vinstri grænna og UVG, Þórunn Ólafsdóttir sagði frá fyrstu reynslu sinni af stjórnmálaþátttöku og hvernig hún varð formaður UVG á Austurlandi, Finnur Dellsén fór yfir stefnu VG og stjórnaði umræðum um hana. Þingmaðurinn Þuríður Backman fræddi svo “nemendur” skólans um starfið á þingi og Kristján Ketill Stefánsson gerði grein fyrir meginatriðum fundarskapa áður en Auður Lilja Erlingsdóttir lauk skólanum með hugleiðingu um hlutverk ungliða í stjórnmálum yfirleitt.

Strax eftir stjórnmálaskólann var svo haldinn aðalfundur UVG á Austurlandi og ný stjórn kjörin. Í henni sitja þau Friðbergur Hreggviðsson, Júlíana Garðarsdóttir, Lára Lárusdóttir og Þórunn Ólafsdóttir. Samkvæmt nýsamþykktum lögum skiptir stjórnin skiptir svo með sér verkum.

Um kvöldið hittust ungliðarnir síðan á veitingahúsinu Kaffi Nielsen og skemmtu sér saman fram eftir kvöldi, sumir enn lengur.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica