Fréttir

Yfirlýsing frá Ungum vinstri grænum í Reykjavík:

22.1.2008

Ung vinstri græn í Reykjavík lýsa yfir vantrausti á nýjasta meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur.Við teljum það þvert á vilja borgarbúa og raunar gengisfelling lýðræðisins að oddviti lista sem hlaut innan við 10% atkvæða borgarbúa í síðustu borgarstjórnarkosningum, njóti nú aðeins 3% stuðning samkvæmt nýlegri skoðanakönnun og ekki einu sinni stuðnings innan eigin varamanna sé orðinn borgarstjóri. Slíkt bendir augjóslega til þess að fýsn í völd sé tekin fram yfir hagsmuni Reykvíkinga.

Tíð meirihluta- og borgarstjóraskipti undanfarinna mánaða hafa rúið borgarstjórnina í heild sinni öllu trausti og það er miður. Á meðan borgarfulltrúar eru uppteknir í pólitísku plotti og meirihlutaskiptum þá er enginn að stjórna borginni en það er merki um ótrúlegt ábyrgðarleysi. Réttast væri að breyta lögum um sveitastjórnarkosningar og boða til nýrra kosninga svo hún fái endurnýjað umboð frá kjósendum og byggi upp það traust sem hún hefur tapað.

Stjórn UVGR

Við hvetjum Reykvíkinga til að láta í sér heyra meðal annars með því að undirrita mótmælaskjal á vefnum: http://www.petitiononline.com/nogbodid/petition.html

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica