Fréttir

Kosningahappdrætti Vinstri Grænna

28.3.2006

Kosningahappdrætti Vinstri grænna vegna sveitarstjórnarkosninga 2006 hefur verið hleypt af stokkunum. Happdrættið er sameiginlegt fyrir landið allt - og miðin. Happdrættið er hið glæsilegasta í alla staði. Vinstri grænn andi hoppar af gleði og býður upp á frábæra vinninga. Í boði eru úttektarvinningar og ferðavinningar innanlands sem utan. Sérhannaðar ferðir með sagnamönnum vítt og breytt um landið. Eðalveitingar eru víða í boði og margháttaðir lífslistarvinningar gefa fyrirheit um andlegt og líkamlegt dekur.

Rúsínurnar í pylsuendanum eru frambjóðendavinningarnir sem í sjálfu sér eru ómetanlegir. Hver vill ekki sigla um sundin blá með Svandísi, eiga sögustund með Elíasi Mar á Hótel Borg, spjalla við Baldvin um sögu Akureyrar yfir málsverði á Flugkaffinu eða hjóla með Ólafi Þór? Og er nú fátt eitt nefnt.

Miðarnir fást hjá flokksfélögum um land allt og kostar miðinn einungis 1.000 kr. Lítið verð fyrir mögulegan gullmola!

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica