Vinstri græn í forystu Norðurlandasamstarfs næsta árið
Í byrjun vikunnar komu formenn og framkvæmdastýrur Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum saman í Stokkhólmi. Flokkarnir hafa með sér reglulegt samstarf undir hatti Nordic Green Left Alliance og á fundinum var ákveðið að Vinstri græn á Íslandi tæki að sér formennsku í samstarfinu næsta árið. Í því felst að tryggja samráð og upplýsingaflæði milli flokkanna, halda málþing og hýsa fundi fyrir formenn flokkanna og framkvæmdastýrur. Norðurlandasamstarfið er mikilvægt enda glíma flestir flokkar við sömu viðfangsefni óháð löndum. Næsta árið verður fjallað sérstaklega um stöðu launafólks og hvernig flokkarnir geti samnýtt þekkingu sína til að verja áunnin réttindi þrátt fyrir að hart sé sótt að launafólki úr ýmsum áttum. Í apríl munu vinstri græn í samvinnu við systurflokkana halda málþing hér á landi til að fjalla sérstaklega um þessi mál.
Á fundi formanna og framkvæmdastýra flokkanna var farið yfir pólitískt ástand í hverju landi fyrir sig og stöðu flokkanna. Sérstaklega var fjallað um kosningasigur danska sósíalistaflokksins (SF) í þingkosningunum sem fram fóru í haust og áherslur finnska flokksins (Vasemmisto liitto/Vänsterförbundet) í komandi sveitastjórnarkosningum. Í Noregi er Sósíalíski vinstriflokkurinn (SV) í ríkisstjórn og formaðurinn, Kristin Halvorsen gegnir embætti fjármálaráðherra. Hún gerði grein fyrir þeim áskorunum sem endalausar málamiðlanir í stjórnarsamstarfi hafa í för með sér og hvernig flokkurinn vinnur markvisst úr þeim. Gestgjafarnir, Vänsterpartiet í Svíþjóð, situr í stjórnarandstöðu ásamt sósíaldemókrötum og umhverfisflokknum en hægristjórnin hefur aldrei verið óvinsælli og óvíst um líftíma hennar. Steingrímur J. Sigfússon bauð formönnum allra flokkanna velkomna á næsta landsfund Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að ári, í febrúar 2009.

