Ung vinstri græn á Austurlandi
Laugardaginn 10. febrúar síðastliðinn var stofnuð stjórn Ungra vinstri-grænna á Austurlandi. Í stjórn voru kjörin:
Þórunn Ólafsdóttir, formaður s. 867-8542
Lilja Kristín Jónsdóttir, ritari
Bessi Þór Atlason, gjaldkeri
Júlíana Garðarsdóttir, meðstjórnandi
Friðbergur Hreggviðsson, meðstjórnandi
Katrín Halldóra Sigurðardóttir ,varmaður
Lára Lárusdóttir, varamaður
Ályktun um málefni innflytjenda og erlends verkafólks á Austurlandi:
Stofnfundur Ungra vinstri-grænna á Austurlandi, haldinn á Egilsstöðum 10. febrúar 2007, telur nauðsynlegt að standa betur að réttindum innflytjenda og verkafólks með erlent ríkisfang á svæðinu. Mun meiri áherslu þarf að leggja á að kynna þessum hópum réttindi sín og skyldur, sinna fræðslu og gera fólki þar með kleift að verða þátttakendur í eigin samfélagi.
Íslenskukennslu þarf að efla til muna og gera hana aðgengilegri. Slíkt nám þarf að vera fólki að kostnaðarlausu og fara fram á vinnutíma. Þá er nauðsynlegt að aðgengi að túlkaþjónustu sé viðunandi og að mikilvæg skjöl líkt og ráðningarsamningar séu þýddir á tungumál sem viðkomandi skilji.
Ekki má heldur gleyma að hlúa að börnum innflytjenda. Börn af erlendum uppruna þurfa að fá sem best tækifæri til að aðlagast en um leið varðveita sérstöðu sína. Um leið og þau læra íslensku og fá þar með betra tækifæri til að taka þátt í íslensku samfélagi, er nauðsynlegt að börn af erlendum uppruna eigi rétt á að læra eigið móðurmál og fái tækifæri til að kynnast menningu upprunalands síns.
Ályktun um samstarfsverkefni Stígamóta og sveitarfélaga á Austurlandi:
Stofnfundur Ungra vinstri-grænna á Austurlandi fagnar tilraunaverkefni Stígamóta í samstarfi við Félagsþjónustu Fjarðarbyggðar og Fljótsdalshéraðs um starfssemi í landsfjórðungnum.
Fundurinn telur löngu tímabært að fórnarlömb kynferðisofbeldis fái stuðning og geti leitað sér viðeigandi aðstoðar í heimabyggð. Þrátt fyrir að um sé að ræða skref í rétta átt harmar stofnfundur ungra vinstri-grænna á Austurlandi að ekki sé gengið lengra í þessu efni. Enda má ljóst vera að viðtöl á viku fresti duga skammt til að vinna á hörmulegum afleiðingum kynferðisofbeldis. Því skora fundarmenn á sveitarfélög á Austurlandi að styðja vel við verkefnið svo að hægt sé að efla þjónustuna.
Ályktun um málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands:
Stofnfundur Ungra vinstri-grænna á Austurlandi skorar á stjórnvöld að taka strax á málefnum Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Starfsemi stofnunarinnar hefur ekki fengið að þróast í takt við gríðarlega fjölgun íbúa á Austurlandi undanfarin misseri, heldur hafa fjárframlög til hennar þvert á móti verið skert. Það er til skammar að ekki sé til dæmis boðið upp á fæðingarþjónustu á Egilsstöðum, leguplássum á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum hafi fækkað, bráðaþjónusta sé ekki nægilega góð eða aðgengileg og svo mætti lengi telja.
Fundurinn harmar þá óvirðingu sem íbúum Austurlands er sýnd með þessu afskiptaleysi og krefst þess að sjálfsagður réttur þeirra til heilbrigðisþjónustu verði tryggður.
Allar frekari upplýsingar veitir nýkjörin formaður Þórunn Ólafsdóttir í síma 867-8542

