Fréttir

Gjaldfrjáls strætó í Árborg og átak í umhverfismálum

4.1.2008

arborg_logo
arborg_logo

Meirihlutinn í Árborg, sem skipaður er fulltrúum Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokksins hefur undirritað samning við Þingvallaleið um strætóferðir innan Árborgar. Strætó er gjaldfrjáls öllum farþegum og verður þessi tilraun endurmetin eftir eitt ár þegar sérleyfi Þingvallaleiðar rennur út. Markmiðið er að þá taki bærinn við rekstrinum og komi sér upp eigin strætókerfi. Farnar verða 9 ferðir á dag alla virka daga og gefin út leiðabók með tímasetningum og henni dreift á öll heimili. Sett verða upp strætisvagnaskýli á öllum stoppistöðvum.

Jón Hjartarson forseti bæjarstjórnar og fulltrúi Vinstri grænna segir að þetta sé merkisdagur í samgöngu- og umhverfismálum bæjarfélagsins. Ekki nóg með að nú sé boðið upp á ókeypis strætósamgöngur fyrir íbúa svæðisins heldur hafi umhverfismálin verið endurskoðuð innan stjórnkerfis bæjarins. Stöðu umhverfissérfræðings var komið á fót og heyrir beint undir bæjarstjóra. Katrín Georgsdóttir var ráðin í það embætti nú í byrjun janúar.

Árborg er ört stækkandi sveitarfélag og hefur fólksfjölgun þar numið 4-7% á ári síðustu ár. Þessi gríðarlega fjölgun kallar á umfangsmiklar framkvæmdir í skóla- og íþróttamálum en auk þess hefur verið ákveðið að opna ungmennahús í byrjun ársins, niðurgreiða tómstundir barna í haust og koma fjárhagslega til móts við foreldra sem eru með börn hjá dagmæðrum.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica