Fréttir

Vel tekið í tillögur Guðrúnar Ágústu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar

20.12.2007

gudrun_agusta_gudmundsdottir
gudrun_agusta_gudmundsdottir

Grunnskóli án gjaldtöku, gjaldfrjáls leikskóli 5 ára barna, aðgengismál, kaup á loftgæðastöð, umhverfisátak, skautahöll, launajafnrétti, upplýsingar til nýrra bæjarbúa, bygging sjálfbærs hverfis, rannsókn á námserfiðleikum stúlkna og kynning á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta eru allt tillögur bæjarfulltrúa Vinstri grænna sem hlutu góðar undirtektir á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði í gær og voru samþykktar til frekari umfjöllunar og úrvinnslu í ráð, nefndir og til starfsmanna. Tillögurnar í heild sinni fylgja hér:

Grunnskóli án gjaldtöku

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að allri gjaldtöku af nemendum í grunnskólum Hafnarfjarðar verði hætt haustið 2008, þar með talið gjaldtöku fyrir hádegismat og heilsdagsskóla.

8 tíma gjaldfrjáls viðveru 5 ára barna í leikskólum Hafnarfjarðar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að árið 2008 verði leikskólagjöld 5 ára barna felld niður fyrir 8 tíma viðveru.

Fullt aðgengi fatlaðra að umhverfi og byggingum Hafnarfjarðar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að umhverfi og öll starfsemi Hafnarfjarðarbæjar verði að fullu aðgengilegt hvort sem um er að ræða húsnæðið í eigu bæjarins eða leigt af öðrum aðilum.

Bæjarsjórn Hafnarfjarðar samþykkir því að fela framkvæmdasviði að bæta aðgengi fatlaðra að umhverfi og byggingum Hafnarfjarðarbæjar í samræmi við Aðgengi fyrir alla. Handbók um umhverfi og byggingar.

Til að tryggja slíka faglega úttekt verði óskað eftir samstarfi við Öryrkjabandalag Íslands, Þroskahjálp, Blindrafélagið og Sjálfsbjörg.

Kaup á færanlegri loftgæðastöð fyrir heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að festa kaup á færanlegum búnaði til að mæla loftgæði í Hafnarfirði. Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis verði falið að annast kaup á þeim búnaði sem uppfyllir þær gæðakröfur sem nauðsynlegar eru taldar til mengunarmælinga í þéttbýli.

Grænar og bláar tunnur

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hvetja bæjarbúa til að flokka sorp af enn meiri krafti en verið hefur með því að bjóða bæjarbúum að staðsetja grænar og bláar tunnur við fjölbýlis-, rað, par- og einbýlishús í bænum.

Bæði græna og bláa tunnan verður eign bæjarins.

Þeim bæjarbúum sem kjósa að nota græna tunnu í stað venjulegrar sorptunnu munu greiða helmingi lægra sorphirðugjald þar sem grænar tunnur eru losaðar á tveggja vikna fresti.

Verð fyrir bláa tunnu verður 5.500 krónur á ári og er leiguverð innifalið í árlegu sorpeyðingargjaldi fyrir tunnuna.

Heildar sorphirðugjald þeirra sem kjósa að nota bæði bláar og grænar tunnur verður því 12.000 króna ár ári í stað 13.000 króna fyrir hefðbundið sorpeyðingargjald.

Skipan starfshóps til að undirbúa byggingu skautahallar í Hafnarfirði

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að setja á stofn starfshóp skipaðan fulltrúum úr íþrótta- og tómstundanefnd og skipulags- og byggingarráði til að vinna að uppbyggingu skautahallar í Hafnarfirði. Verksvið starfshópsins verði að skoða mögulega staðsetningu, hönnun og byggingu skautahallar fyrir vetraríþróttafélag Hafnarfjarðar og skautaiðkun fyrir almenning.

Jafnrétti til launa

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að veita sérstöku fé til að vinna að leiðréttingu 6% kynbundins launamunar sem fram kom í launakönnun Hafnarfjarðarbæjar 2007, framkvæmd af ParX viðskiparáðgjöf sem unnin var í júní 2007.

Skipaður verði starfshópur með fulltrúum allra flokka sem skoði hvar þessi launamunur er og hvernig eigi að nýta það fé sem veitt verður til að leiðrétta þennan mun.

Upplýsingar fyrir nýja bæjarbúa

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að láti útbúa upplýsingabækling með nauðsynlegustu upplýsingum fyrir nýja íbúa í bænum á nokkrum tungumálum auk blindraleturs.

Nýir íbúar fái slíkan bækling sendan við flutning til bæjarins.

Umhverfisvænt/sjálfbært hverfi

Settur verði á fót starfshópur með fulltrúum allra flokka til að undirbúa skipulagsvinnu að umhverfisvænu og sjálfbæru hverfi á forsendum Staðardagskrár 21. Hlutverk starfshópsins verði að finna hentugt svæði undir slíkt hverfi, leita upplýsinga um fyrirmyndir að slíkum hverfum og hefja undirbúning að hönnun hverfisins.

Rannsókn á námserfiðleikum stúlkna

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að láta gera rannsókn á námserfiðleikum stúlkna í Hafnarfirði með það að markmiði að reyna að finna leiðir til að koma til móts við þær með markvissari hætti en gert er í dag.

Kynning á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að fela bæjarlögmanni að vinna að kynningu á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hægt verði að nota í grunnskólum bæjarins frá og með hausti 2008.

Samkvæmt samningnum ber aðildarríkjunum að kynna efni hans með virkum hætti jafnt fyrir börnum sem fullorðnum. Það er því kjörið að Hafnarfjörður sýni gott fordæmi og hefði kynningu á sáttmálanum fyrir börnum sveitarfélagsins.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica