Fréttir

Uppskipting Landsvirkjunar: Fyrsta skref til einkavæðingar?

17.12.2007

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs telur alvarlegar spurningar vakna við þær fréttir að nú eigi að kljúfa Landsvirkjun í tvö fyrirtæki, annars vegar Landsvirkjun og hins vegar Landsvirkjun Power ehf. Með þessu sé verið að búa til tvo forstjórastóla í stað eins og færa hluta af umsvifum fyrirtækisins, ákvarðanir og verkefni, fjær eigendum, þ.e.a.s. almenningi. Aðhald og eftirlit kjörinna fulltrúa virðist með þessu verða takmarkað enn frekar en áður jafnvel þótt í hlut eigi einokunarrisi íslensks orkumarkaðar í 100% eigu almennings. Er þó svo illa komið nú þegar að fjármálaráðherra skipar einn stjórn Landsvirkjunar í stað þess að hún sé þingkjörin og komi frá sveitafélögum eins og áður var. Við þessar breytingar mun upplýsingagjöf „ehf.“-hluta fyrirtækisins væntanlega skerðast og viðbúið er að reynt verði að undanþiggja þann hluta starfseminnar ákvæðum upplýsingalaga og stjórnsýslulaga. Einnig hefur þetta áhrif á réttarstöðu starfsmanna.

Með LV Power ehf. virðist ekki í reynd verið að afmarka áhættuna heldur þvert á móti blanda saman verkefnum innan lands og erlendis með tilheyrandi áhættu. 8 milljarða heimanmundur, frá fyrirtæki með ríkisábyrgð á öllum sínum lánum, er settur inn í lokað fyrirtæki sem á að vera í áhætturekstri en hefur um leið með höndum alla rannsóknavinnu, undirbúning og umsjón með framkvæmdum hérlendis.

Það er athyglisvert að þessum gjörningi er hampað sem hluta af og beinlínis vísað til stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Það helsta sem þar kemur fram varðandi orkumál er að “tímabært“ sé að „leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins svo að íslensk sérþekking og hugvit fái notið sín til fulls í útrás orkufyrirtækja.“
Ber að túlka þetta svo að til standi að hleypa einkafjármagninu inn í framkvæmdir hér innan lands einnig, þar eð LV Power virðist jöfnum höndum eiga að annast verkefni hérlendis og erlendis?

Þingflokkur VG varar sterklega við þessum áformum og fer fram á frekari útskýringar á málinu, bendir á að lagaumhverfi orkufyrirtækjanna kunni að taka breytingum á næstu misserum, spyr hvort það sé tilviljun að þessi áform eru kynnt um leið og Alþingi hefur lokið störfum fyrir jól og minnir á að til þess eru vítin að varast þau, sbr. OR/REI/GGE málið.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica