Fréttir

Eldri borgarar fá liðveislu í Kópavogi að tillögu Vinstri grænna

12.12.2007

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Kópavogs fyrir árið 2008, voru tvær af breytingartillögum VG samþykktar. Fyrri tillagan er um liðveislu fyrir aldraða, með svipuðu sniði og hefur verið í boði fyrir fatlaða. Þessi þjónusta hefur ekki verið áður í boði fyrir eldri borgara, og er mikilvægt framfaraskref sem mun gera eldra fólki auðveldara að búa að sínu. Kópavogur verður með þessu fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu til að taka upp slíka þjónustu. Seinni tillagan fjallar um fjármagn til vettvangsferða grunnskóla, en með henni er létt af foreldrum kostnaði vegna ferða grunnskólabarna á skólatíma. Samþykkt tillögunnar er mikilvægt skref í þá átt að jafna stöðu grunnskólabarna, og gera grunnskólann gjaldfrjálsann, en jafnframt halda áfram þessum mikilvæga lið í skólastarfinu. Samþykkt tillagnanna sýnir að kröftugur málefnalegur málflutningur VG í bæjarstjórn skilar árangri, bæjarbúum til hagsbóta.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica