Fréttir

Heilsugæslan í uppnámi

9.12.2007

Stjórnarliðar felldu tillögur minnihlutans á þingi um aukin fjárframlög til heilsugæslunnar í fjáraukalögum sl. föstudag. Nú á þriðjudag fer fram atkvæðagreiðsla um fjárframlög til heilsugæslunnar á næsta ári. Þá verður spennandi að sjá hvað úr verður.

Jón Bjarnason þingmaður VG og fulltrúi í fjárlaganefnd hefur flutt tillögur um stóraukin framlög til heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og krafist þess að á málefnum hennar sé tekið. Jón bendir á að málið sé alvarlegt ekki bara fyrir heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu heldur víða um land og segir brýnt að ná þverpólitískri sátt um eflingu heilsugæslu landsmanna. Góð heilsugæsla sé einn mikilvægasti þátturinn í almennri heilsuvernd og forvörnum og það sé því gróf afturför í heilbrigðismálum ef heilsugæslan á nú að draga saman þjónustu sína.

„Við vinstrigræn höfum ítrekað fjallað um þessi mál í þinginu, nú síðast í umræðum um fjáraukalög á fimmtudag. Hér er bæði um að ræða uppsafnaðan rekstrarhalla en einnig fjárþörf fyrir næsta ár“ segir Jón. „Það voru mikil vonbrigði að stjórnarliðar í báðum ríkisstjórnarflokkum skyldu leggjast á eitt um að fella góðar tillögur stjórnarandstöðunnar í þessum efnum.“

Stjórnarandstaðan lagði á föstudag sameiginlega til breytingatillögu upp á 400 milljóna króna aukaframlag í fjáraukalögum til heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til þess að bæta upp ólíðandi hallarekstur undanfarinna ára. Tillagan var felld.

Jón segir jafnframt að fyrir liggi breytingatillögur VG til fjárlaga næsta árs um nauðsynlegar hækkanir framlaga. „Við höfum lagt höfuðáherslu á að fjárhagsstaða heilsugæslunnar yrði bætt. Það verður að auka og bæta þjónustuna en ekki draga saman seglin eins og nú blasir. Það verður spennandi að sjá hvernig atkvæði verða greidd um þessar tillögur til breytinga á fjárlögum á þriðjudaginn. Það besta væri auðvitað ef þverpólitísk sátt næðist um málið. Ég er hins vegar hræddur um að niðurskurður á þjónustu heilsugæslunnar sé einn liðurinn í að neyða kerfið allt til einkavæðingar. Við höfum áður séð slíkar aðfarir.“

Í umræðum um skólafrumvörp menntamálaráðherra hefur Álfheiður Ingadóttir, fulltrúi VG í heilbrigðisnefnd, einnig bent á nauðsyn þess að styrkja skólaheilsugæsluna, en ef núverandi áform ná fram að ganga mun skólaheilsugæsla einnig vera skorin niður. „Við gerum kröfu um að styrkja skólaheilsugæsluna í grunnskólunum, en einnig bendum við á að framhaldsskólar eiga rétt á henni“ segir Álfheiður. „Eftir breytingu á sjálfræðisaldri eiga öll börn að 18 ára aldri rétt á heilsuvernd og okkur ber skylda til að tryggja að svo sé. Ég hef bent á þetta í umræðum á Alþingi og vona að það nái eyrum meirihlutans í afgreiðslu fjárlaga.“



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica