Fréttir

Ekkert aprílgabb! Opnunarhátíðir á þremur stöðum 1. apríl

31.3.2006

Kosningamiðstöðvar Vinstri grænna verða opnaðar með pompi og prakt á þremur stöðum á morgun, laugardaginn 1. apríl, þ.e. á Akureyri í Hafnarstræti 98, í Kópavogi að Hamraborg 1, 4. hæð og í Reykjavík í Suðurgötu 3. Á öllum þessum stöðum hefst formleg opnunarhátíð kl. 16:00, boðið er upp á ávörp frambjóðenda, upplestur, tónlist og sitthvað fleira, og að sjálfsögðu verður boðið upp á kaffi og með því. Dagskrá er betur kynnt í áður birtum fréttum frá hverjum stað hér á síðunni.  

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica