Vinstri græn rokka í Keflavík
Það var fín stemming á Paddy's í Keflavík þegar Heiða, Elvar, Þormóður o.fl. VG-félagar gegnust þar fyrir 1.des samkomuundir yfirskriftinni:"Berjumst gegn jólastressi með rokki og róli". Meðfylgjandi myndir tók Óskar Pétur þegar fyrsta hljómsveitin, Malmeiropremia spilaði ásamt Vali Gunnarssyni rithöfundi sem las upp úr bók sinni Konungur Norðursins og Malmeiropremia spilar undir og söng einnig lög í stíl Leonard Cohen. Mjög sérstök tónlist og sérstök stemming.
Stefnt er að því að halda stofnfund Ungra vinstri grænna á Suðurnesjum strax í byrjun janúar. Þeir sem vilja taka þátt er bent á að hafa samband við Þormóð Loga logi@akurskoli.is s.822 5465.

