Fréttir

Árið gert upp á félagsfundi í Skagafirði

28.11.2007

skagafjordur
skagafjordur

Svæðisfélag Vinstri grænna í Skagafirði hélt opinn félagsfund í gærkveldi á Hótel Varmahlíð. Félagar mættu vel og gestur fundarins var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varaþingkona Vinstri grænna. Bjarni Jónsson, fulltrúi okkar í sveitarstjórn Skagafjarðar fór yfir þau mál sem eru þar efst á baugi og þingmaður kjördæmisins, Jón Bjarnason sagði frá þingstörfunum.

Guðfríður Lilja þakkaði Skagfirðingum fyrir baráttuna fyrir Jökulsánum og spunnust nokkrar umræður um náttúruverndarbaráttuna sem meðal annars Vinstri græn heyja nú um allt land. Mikill áhugi er meðal Skagfirðinga á baráttunni við Þjórsá enda þarf að reisa fána náttúruverndar um allt land gegn gegndarlausri ásælni virkjanasinna og mikilvægt að hvert landsvæði einangrist ekki í baráttu sinni.

Fundinum lauk með upplestri Bjargar Baldursdóttur úr nýútgefinni bók sinni, Kistunni hennar Grýlu og kom Vinstri grænum í Skagafirði þar með í jólaskap.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica