Fréttir

Áform stjórnvalda um að leysa upp stoðkerfi landbúnaðarins gagnrýnd

20.11.2007

holar_i_hjaltadal
holar_i_hjaltadal

Vinstri græn í Skagafirði vara við þeim áformum sem koma fram í frumvarpi að breytingum á Stjórnarráði Íslands, að sundra verkefnum í landgræðslu og skógrækt og flytja stofnanir þeirra frá landbúnaðarráðuneytinu. Skógrækt og landgræsla er óaðskiljanlegur hluti landbúnaðar og hefur verið ein af grunnstoðum landbúnaðrráðuneytisins. Nú á að kljúfa þær upp. Landbúnaðarskólarnir hafa heyrt undir atvinnuvegaráðuneytið frá upphafi og hefur reynst þeim vel. Sem hluti af heildarstoðkerfi landbúnaðarins og annars atvinnulífs hinna dreifðu byggða hafa þessir skólar náð að vaxa og dafna og þróað með sér  mjög náið samstarf við atvinnulífið. Engin málefnaleg rök hafa verið færð fyrir að flytja skólana frá ráðuneytinu.

Vakin er athygli á að Hólar í Hjaltadal er biskupssetur Norðlendinga og  fjölþætt menningar og sögusetur ekki aðeins á héraðs heldur einnig á landsvísu. Staða og framtíð Hóla skiptir Skagfirðinga gríðarmiklu máli. Undir forsjá landbúnaðarráðuneytisins hefur þróast gott samstarf  milli allra aðila sem staðnum tengjast.  Í frumvarpinu er nánast engin grein gerð fyrir framtíðaráformum varðandi Hóla og Hólaskóla en aftur ítarlega fjallað um Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Lögð er þung áhersla á framtíð Hólaskóla  sem sjálfstæðs menntaseturs og engar forsendur  hafa skýrt  nauðsyn þess að flytja hann undir annað ráðuneyti.

Ennfremur eru ítrekaðar efasemdir um gagnsemi þess að flytja málefni sveitarstjórnarstigsins yfir til Samgönguráðuneytisins en sá flutningur gæti orðið til að veikja sveitarstjórnarstigið í landinu. Þá er einnig bent á að ef af flutningi þessa stóra málaflokks verður á milli ráðuneyta þá kemur vart annað til greina en að ráðuneytið heiti Sveitarstjórnar- og samgönguráðuneyti til að undirstrika mikilvæga stjórnsýslulega stöðu sveitarstjórnarstigins. Slíkra breytinga á nafngiftum ráðuneytisins sér þó ekki stað í frumvarpinu.

Vinstri græn Skagafirði

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica