Fréttir

Ályktanir aðalfundar Kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi 2007

19.11.2007

Á aðalfundi Kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi á laugardaginn síðasta voru samþykktar nokkrar ályktanir, meðal annars um flutning opinberra starfa út á land, utanríkis- og öryggismál, umhverfismál, samgöngumál og kjaramál. Ályktanirnar fylgja hér:

Ályktun um flutning opinberra starfa út á land

Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi haldinn 17.11.07 leggst alfarið gegn því að embætti forstjóra veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar verði flutt frá landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið. Fundurinn mælist til þess að störf á vegum ríkisins verði flutt út á land til að styrkja og viðhalda landinu í byggð.

Ályktun um utanríkis- og öryggismál

Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi haldinn 17.11.07 leggur áherslu á að Íslandi marki sér sjálfstæða utanríkisstefnu og því aðeins eigi landið erindi inn í Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna að það notfæri sér möguleika sína til frumkvæðis í friðar- og afvopnunarmálum.

Möguleikar okkar hvíla á sögulegum, menningarlegum og landfræðilegum grunni.

Fundurinn lýsir fullum stuðningi við lýðræðislegt samstarf allra ríkja, sem liggja að Norður-Íshafi á þeim grunni, sem Norðurlandaráð er að móta.

Fundurinn hafnar því að hægt sé að tryggja heimsfrið með hervaldi og hótunum og bendir á að fjárráðstöfun í Íraksstríðið, sem ekki sér fyrir endann á og háð er með samþykki fyrrum ríkisstjórnar Íslands, er margfalt meiri en öll aðstoð sömu þjóða til þróunaraðstoðar.

Fundurinn telur einu raunhæfu leiðina til að sporna gegn útbreiðslu gereyðingarvopna að allar þjóðir, sem yfir þeim ráða geri heiminum (Sameinuðu Þjóðunum) grein fyrir sínum birgðum og leggi fram áætlun um eyðingu þeirra undir gagnkvæmu eftirliti.

Fundurinn harmar að núverandi utanríkisráðherra Íslands skuli hafa gert þjóðinni þá smán að semja um aukin hernaðarumsvif á Íslandi frá mörgum grannríkjum okkar þegar létt hafði verið af landinu óværu bandarísks hers. Þeim fjármunum sem verja á í tilgangslausar og varasamar hernaðaræfingar hér á landi væri betur varið í að efla borgaralega björgunarstarfsemi, almannavarnir, styrkja björgunarsveitir, efla varnir gegn mögulegum mengunarslysum á hafinu og þar fram eftir götunum. Með uppsögn herverndarsamningsins svokallaða og úrsögn úr NATÓ jukust stórlega möguleikar Íslands til forystu í friðarmálum á heimsvísu.

Loks krefst fundurinn þess að liðsafli Íslendinga verði kallaður heim frá Afganistan og þátttaka Íslands í friðargæsluverkefnum verði endur skipulögð og byggi eftirleiðis alfarið á borgaralegum grunni án nokkurra tengsla við hernaðarstarfsemi.

Ályktun um umhverfismál

Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi haldinn 17.11.07 lýsir þungum áhyggjum af áframhaldandi ásælni erlendra álrisa og orkuhungraðra iðnfyrirtækja í auðlindir landsins. Sérstaklega er því mótmælt að leyft sé jarðrask og náttúruspjöll á áður óröskuðum svæðum, svo sem í Gjástykki, sem lofað hafði verið að fengju að vera í friði.  Fundurinn ítrekar stuðning sinn við þá stefnu flokksins að hlé verði gert á öllum frekari stóriðju- og stórvirkjanaframkvæmdum og grunnur lagður að nýrri náttúruverndar- og nýtingarstefnu, sem standist kröfur um sjálfbæra þróun.

Ályktun um samgöngumál

Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi haldinn 17.11.07 fagnar þeim áföngum sem náðst hafa og eru í sjónmáli í samgöngumálum í kjördæminu en minnir jafnframt á að mörg brýn úrlausnarefni hafa enn ekki komist inn á áætlun og/eða full óvissa ríkir um hvenær unnt verði að ráðast í þau. Þar nefnir fundurinn sérstaklega jarðgöng undir Vaðlaheiði, frekari jarðgangnaframkvæmdir á Miðausturlandi og milli Vopnafjarðar og Héraðs, auk þess að kláraðir verði þeir kaflar hringvegarins í Skriðdal og á sunnanverðum Austfjörðum, sem út af standa. Sömuleiðis þá kafla sem eftir eru á Norðaustuleiðinni milli Þórshafnar og Vopnafjarðar.  Óumflýjanlegt er að gera stórátak í uppbyggingu tengivega og ferðamannavega.  Móta þarf stefnu um hálendisvegi, með hvað hætti þeir verða lagðir eða lagfærðir um leið og tekið verði hart á öllum utanvegaakstri og handahófskenndri og stjórnlausri lagningu vegaslóða á hálendinu hætt.  Fundurinn gagnrýnir harðlega þann óþolandi drátt sem orðið hefur á því að ráðist sé í löngu tímabærar úrbætur í fjarskipta- og gagnaflutningamálum á landsbyggðinni.  Fátt ef nokkuð stendur strjálbýli landsins meira fyrir þrifum nú um stundir en óviðunandi fjarskipta- og gagnaflutningamöguleikar.

Ályktun um kjaramál

Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi haldinn 17.11.07 lýsir þungum áhyggjum af vaxandi kjaramisrétti í landinu og leggur áherslu á að í komandi kjarasamningum verði krafa um launajöfnuð efst á blaði.  Nauðsynlegt er að hækka skattleysismörk og lægstu laun þannig að þau dugi til framfærslu og tryggja með því um leið að unnt sé að manna m.a. störf í umönnunnar- og uppeldisgeiranum og á fleiri sviðum í velferðarþjónustunni, sem núna líður fyrir manneklu og óheyrilegt álag á þá starfsmenn, sem eftir eru. Hluti af jafnlaunaáherslum í komandi kjarasamningum, sem og markvissum aðgerðum stjórnvalda verður að vera að skora á hólm hinn ólíðandi kynbundna launamun, sem síst er á undanhaldi á Íslandi og felur í sér gróf mannréttindabrot og frelsisskerðingu kvenna.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica