Kosningamiðstöð VG Akureyri opnuð 1. apríl
Vinstri græn á Akureyri opna Kosningamiðstöð á Akureyri laugardaginn 1. apríl klukkan 16-18. Ekkert plat!
Baldvin, Kristín, Dýrleif, Jón, Baldvin Esra og Lilja taka á móti gestum með te og kaffi og meðlæti.
Tónlist, upplestur, myndlist, leiklist
Stutt ávörp:
Steingrímur J. Sigfússon formaður VG
Þuríður Backman þingmaður
Bjarkey Gunnarsdóttir þingmaður
Baldvin H. Sigurðsson efsti maður á lista VG
Kristín Sigfúsdóttir í öðru sæti á lista VG.
Kynnir: Hlynur Hallsson kosningastjóri
Allir hjartanlega velkomnir! Fjölmennum og tökum þátt í upphafi kosningabaráttunnar!
Um kvöldið verða svo tónleikar sem UVGA standa fyrir í Ketilhúsinu til að mótmæla stóriðjuframkvæmdum á Norðurlandi. Fólk er hvatt til að fjölmenna einnig á þessa frábæru tónleika sem hefjast klukkan 20:00.
Vinstri græn - Hafnarstræti 98 - 600 Akureyri - sími 462 3463 - www.xv.is - opið 15-17 alla virka daga.

