Fréttir

Det ku´ være så godt: Steingrímur fylgist með kosningunum í Danmörku

13.11.2007

SF_logo
SF_logo

Í morgun flaug Steingrímur J. Sigfússon til Danmerkur til að vera viðstaddur kosningarnar til danska þingsins. Ef marka má skoðanakannanir mun systurflokkur Vinstri grænna í Danmörku, SF, undir forystu Villi Sövndal, tvöfalda fylgi sitt frá síðustu kosningum og standa uppi sem sigurvegarar í kvöld. Í aðdraganda kosninganna hefur SF lagt áherslu á betri aðbúnað aldraðra, meðal annars með launahækkunum til handa starfsfólks sem hugsar um eldri kynslóðina. Þá leggja frambjóðendur SF áherslu á að fækka nemendum í hverjum bekk í grunnskólum og fjölga kennurum. Umhverfissjónarmið eru sömuleiðis áberandi þar sem hvetja á fólk til að nýta almenningssamgöngur, vindmyllum er gert hátt undir höfði sem virkjanakosti og fólk á að fá umbun fyrir umhverfisvænni lífsstíl.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica