Fréttir
Ógildingu samruna fagnað
Stjórn vinstri-grænna í Reykjavík ályktar
Stjórn vinstri-grænna í Reykjavík fagnar þeirri ákvörðun borgarráðs að ógilda samruna REI og Geysir Green Energy og uppsögn þjónustusamnings á milli REI og Orkuveitu Reykjavíkur.
Sá árangur að náðst hafi þverpólitísk samstaða í borgarráði um málið, sýnir og undirstrikar þá framsýni og réttlætiskennd sem einkennir forystufólk í borgarstjórnarflokki vinstri-grænna.
Auðlindir landsins skulu vera sameign þjóðarinnar!

