Ný stjórn í VG á Akureyri
Aðalfundur svæðisfélags Akureyrar fór fram í Deiglunni þann 24. október. Fundurinn sendi baráttukveðjur í tilefni kvennafrídagsins. Á fundinum var einnig kjörin ný stjórn en Jón Erlendsson lét af embætti formanns og í hans stað var kjörin Huginn Freyr Þorsteinsson. Aðrir í stjórn voru kosnir:
Kristín Sigfúsdóttir
Klara Sigurðardóttir
Guðmundur Helgi Helgason
Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir
Varastjórn: Jónína Hjaltadóttir
Jósep Helgason
Munu þau skipta með sér verkum á fyrsta fundi nýrrar stjórnar.
Skoðunarmenn reikninga eru Valgerður H. Bjarnadóttir og Guðmundur Ármann Sigurjónsson.
Á fundinum voru einnig kjörnir fulltrúar svæðisfélags Akureyrar á kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í Norðaustukjördæmi sem verður í Mývatnsveit þann 3. nóvember næstkomandi.

