Fréttir
Aðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík skorar á borgarstjórn að afnema kynbundinn launamun
Svohljóðandi ályktun var samþykkt á aðalfundi Vinstri grænna í Reykjavík: Aðalfundur VGR, haldinn 24. október 2007, á þrítugasta og öðrum afmælisdegi kvennafrídagsins hvetur til öflugrar umræðu um stöðu kvenna á vinnumarkaði og skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að afnema kynbundinn launamun í komandi kjarasamningum.

