Fréttir

Í tilefni dagsins

24.10.2007

kvennamerkid
kvennamerkid

Vinstrihreyfingin – grænt framboð byggir stefnu sína á umhverfisvernd, félagslegu réttlæti og kvenfrelsi. Síðustu ár hafa þingmenn Vinstri grænna lagt fram ótal tillögur um leiðir til að vinna á kynbundnu misrétti í samfélaginu. Vinstri græn hafa langt til að kaupendur vændis veri látnir sæta ábyrgð, að lögregla fái í hendur úrræði til að fjarlægja ofbeldismenn af heimilum og banna heimsóknir þeirra þangað tímabundið, að fórnarlömb mansals sem gefa sig fram hér á landi njóti verndar íslenskra yfirvalda, að jafnréttisstofa verði stórefld og fái í hendur tæki til að takast af alvöru á við kynbundinn launamun, að mikilvægi kvennahreyfingarinnar verði viðurkennt með markvissum hætti og fleira mætti telja.

Á döfinni er að leggja fram fjölda þingmála af þessum toga. Má þar nefna lagafrumvarp Atla Gíslasonar um kynfrelsi sem gengur út frá því að ef ekki liggi fyrir samþykkti fyrir kynmökum þá sé um nauðgun að ræða. Þannig verði nauðgun ekki lengur bundin við verknaðarlýsingu, að ofbeldi hafi verið beitt eða hótun um ofbeldi, heldur verði litið á afleiðingar nauðgunarinnar og dæmt út frá þeim. Þannig verði nauðgun skilgreind sem ofbeldi í sjálfu sér. Þá mun Kolbrún Halldórsdóttir leggja fram þingsályktunartillögu um að mótaðar verði siðareglur opinberra starfsmanna í vinnuferðum erlendis þar sem lagt verður til bann við kaupum á kynlífsþjónustu. Þessi mál og fjölmörg önnur verða lögð fram af þingmönnum Vinstri grænna í anda kvenfrelsis á yfirstandandi þingi.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica