Aðalfundur VG á Akranesi kýs nýja stjórn og ályktar um fjölbraut
Á aðalfundi VG á Akranesi 22. Október var svohljóðandi ályktun samþykkt:
Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs Akranesi og nágrenni, haldinn 22. október 2007, leggur áherslu á að ríkið geri FVA kleift að sinna skyldum sínum gagnvart nemendum á starfsvæði skólans. Nú er staðan sú að skólinn fær ekki fjárframlög með öllum þeim nemendum sem hann sækja samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2008.
Því ber að fagna að nemendum hefur fjölgað við skólann. Mikilvægt er að áfram verið hægt að bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu með því að tryggja nægt fjármagn til skólans.
Þá kaus aðalfundurinn nýja stjórn og er Hjördís Garðarsdóttir nýkjörinn formaður en auk hennar sitja Sigurður Mikael Jónsson og Guðrún Margrét Jónsdóttir í stjórn. Varastjórnina skipa Garðar Norðdahl og Rún Halldórsdóttir.


