Bókun bæjarfulltrúa VG í Hafnarfirði vegna matsáætlunar Landsnets
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna í Hafnarfirði lagði fram meðfylgjandi bókun á fundi bæjarstjórnar síðastliðinn þriðjudag vegna matsáætlunar Landsnets fyrir háspennulínur frá Hellisheiði að Straumsvík.
Heildstæð áætlun verði tekin í umhverfismat Bæjarfulltrúi Vinstri grænna telur mikilvægt að jarðlagnaleið sé raunverulegur valkostur í matsáætlun Landsnets fyrir háspennulínur frá Hellisheiði að Straumsvík. Í matsáætlun Landsnets er aðeins að litlu leyti gert ráð fyrir að rafmagn verði flutt með jarðstrengjum. Ef af þessum framkvæmdum verður þarf að vera hægt að fá nógu mikið verð fyrir orkuna til þess að hægt sé að grafa raflínur í jörðu.
Þar að auki er matsáætlun Landsnets aðeins lítill hluti af stóriðjuframkvæmdum sem eru í undirbúningi suðvestanlands og því mikilvægt að heildstæð áætlun verði tekin í umhverfismat á grundvelli laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Umhverfismatið nái til allra stóriðjuáforma suðvestanlands að virkjunum og raflínulögnum meðtöldum.

