Fréttir

Nýjum meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur fagnað

12.10.2007

Stjórnir Ungra vinstri-grænna og Ungra vinstri-grænna í Reykjavík fagna komandi meirihlutasamstarfi í Reykjavík. Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki verið við völd nema í eitt og hálft ár var löngu tímabært að koma hinum spilltu peningaöflum frá völdum í borgarstjórn Reykjavíkur.

Ein af forsendum þess að hið nýja samstarf gangi upp er að Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi,  geri hreint fyrir sínum dyrum í orkumálum Reykjavíkur sem allra fyrst.  Einnig þarf Dagur B. Eggertsson að útskýra hvers vegna hann studdi það að völdum starfsmönnum  Orkuveitu Reykjavíkur yrði boðnir kaupréttarsamningar í  REI. Ung vinstri-græn telja Svandísi Svavarsdóttur hafa með framgöngu sinni að undanförnu sýnt að hún er og verður hinn eini sanni leiðtogi borgarstjórnar Reykjavíkur.

Stjórnir UVG og UVGR óska Reykvíkingum til hamingju með að  hafa loksins fengið borgarstjórnarmeirihluta sem hefur meirihluta kjósenda á bak við sig, eins og vera ber. Ung vinstri-græn sjá ekkert athugavert við það að lýðræðislega kjörnir fulltrúar fjögurra flokka myndi með sér meirihluta og draga í efa að nokkurn tíma muni ríkja jafn mikill glundroði meðal nýs meirihluta  og meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að undanförnu.

Allar frekari upplýsingar veitir Auður Lilja Erlingsdóttir, formaður UVG, í síma 694 99 96.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica