Fréttir

VG í Borgarbyggð skorar á Alþingi að afturkalla heimild til að selja Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar

11.10.2007

akranesveita_logo
akranesveita_logo

Fundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Borgarbyggð, haldinn í Borgarnesi 10. október 2007, skorar á Alþingi að fella nú þegar úr gildi heimild í fjárlögum til að selja hlut ríkisins í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Atburðarás undanfarinna daga hefur leitt í ljós að sala ríkisins á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja voru mistök.

Það er Borgfirðingum afar mikilvægt að ráða þeim náttúruauðlindum sem gera Borgarfjörð jafn fýsilegan búsetukost og raun ber vitni en Deildartunguhver og önnur hitaréttindi HAB í Borgarfirði verði ekki leiksoppar markaðsaflanna líkt og gerst hefur á Suðurnesjum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica