Eldri vinstri-græn halda fræðslu- og skemmtifund 10. október kl. 20.00
Fyrsti fundur haustsins
Eldri vinstri græn halda fyrsta fræðslu- og skemmtifund haustsins miðvikudaginn 10. október nk. kl. 20:00 í Stangarhyl 4, húsi eldri borgara í Reykjavík. Dagskráin verður í aðalatriðum þessi: 1. Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöfluna – Auður Hildur Hákonardóttir grasnytjungur og myndlistarkona 2. Nostralgísk gamanmál – Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur 3. Norrænir söngvar fyrir flaututríó – Nemendur úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar leika undir stjórn Maríu Cederborg tónlistarkennara 4. „Allt í lagi í Reykjavík“ – Katrín Jakobsdóttir þingkona spjallar um pólitík í gamalli glæpasögu Ólafs Friðrikssonar. Þetta er þriðja starfsár hópsins. Félagar í VG eru sérstaklega hvattir til að taka með sér vini og kunningja því fundirnir eru opnir öllum óháð aldri og stjórnmálaskoðunum. Í kaffihléi gefst gott tóm til að ræða nýjustu viðburði í pólitíkinni.

