Fréttir

Öflugur Íbúðalánasjóður í þágu fólksins

5.4.2006

Vinstri græn í Skagafirði vara eindregið við þeim áformum formanns Framsóknarflokksins, Halldórs Ásgrímssonar, að fórna Íbúðalánasjóði og þjónustu hans á altari einkavæðingarinnar. Hugmyndir um slíka einkavæðingu almannaþjónustu njóta stuðnings Sjálfsstæðisflokksins og því miður eiga þær einnig hljómgrunn innan Samfylkingarinnar. Starfsemi Íbúðalánasjóðs hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir atvinnulíf og byggð í Skagafirði ásamt því að gegna veigamiklu hlutverki á landsvísu. Með tilvist öflugs Íbúðalánasjóðs hefur tekist að tryggja jafnrétti allra landsmanna, óháð búsetu, til íbúðalána á hagkvæmum kjörum. Með félagslegum tilstyrk sjóðsins er hlutfall eignarhúsnæðis jafn hátt og raun ber vitni hér á landi. Nú ásælast bankar og aðrir fjármagnseigendur sjóðinn.

 

VG í Skagafirði skorar  á  félagshyggjufólk um allt land að bregðast hart við til varnar Íbúðalánasjóði og leggur áherslu á að efla sjóðinn og þjónustu hans og tryggja bein og milliliðalaus samskipti við lántakendur og allan almenning í landinu.

 

2. 4. 2006

 

Vinstri græn í Skagafirði

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica