Fréttir

Sveitarstjórnarráð Vinstri grænna ályktar í tilefni af umræðum um fjárfestingar einkaaðila í orkugeiranum

13.9.2007

Eignarhald og nýting náttúruauðlinda hefur um langt skeið verið þrætuepli í íslensku samfélagi og hefur í raun klofið þjóðina í tvennt. Undanfarna áratugi hafa hatrammar deilur staðið um sjávarauðlindina, nýtingu hennar, framsal veiðiheimilda og eignarhald.  Nú bendir ýmislegt til að í uppsiglingu kunni að vera  sambærileg átök um eignarhald og nýtingu orkuauðlindanna og vatnsins. Slík átök  verða ekki síður alvarleg fyrir íslenskt samfélag.  Þessi átök snúast um grundvallarhugsjónir, hvort tryggja eigi samfélagslegt eignarhald og nýtingu á orkuauðlindum eins og annarri grunnþjónustu eða hvort fórna eigi enn einni sameigninni í þágu peningaaflanna.
 
Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur mikilvægt að eignarhald á vatnsafli og jarðvarma til orkuframleiðslu sé skilgreind sameign landsmanna. Það sama gildir um ferskvatnið og aðrar náttúruauðlindir. Við teljum eðlilegt að skýrt sé kveðið á um það í stjórnarskrá lýðveldisins.  Orkuveitur  landsins eru  enn sem komið er að fullu í eigu opinberra aðila, með einni undantekningu en blikur eru þó á lofti í þeim efnum.  Nú heyrast háværar kröfur um breytingu á rekstrarformi einstakra orkuveitna.  Slíkar breytingar munu  auðvelda sölu þeirra síðar til einkaaðila. Þá mun bein fjárfesting innlendra og erlendra fjársterkra aðila í orkugeiranum fyrr eða síðar leiða til þess að þjóðin missir eignarhaldið á auðlindunum  sjálfum  til nýrra „kvótakónga“.  
 
Orkuveiturnar hafa mikilvægu hlutverki að gegna í sveitarfélögunum. Þau sinna grundvallarþjónustu í sínu samfélagi og lögbundnum skylduverkefnum sveitarfélaga.  Þau tryggja aðgang allra að fersku neysluvatni, heitu vatni og rafmagni, auk þess að reka fráveitu.  Að mati sveitarstjórnarráðs  VG er afar þýðingarmikið að þessi samfélagsþjónusta sé á hendi sveitarfélaganna ekki síst vegna þess að  reynslan annars staðar frá mælir eindregið með samfélagslegu eignarhaldi. Þar sem sambærilegar breytingar hafa átt sér stað hefur einkavæðingin haldið innreið sína, verð á raforku og vatni til almennings hækkað og afhendingaröryggi minnkað.

 

Sveitarstjórnarráð VG varar við þeirri þróun sem nú er í augsýn og hvetur alla sem vilja tryggja sameign þjóðarinnar á auðlindunum að standa vörð um samfélagslegt eignarhald á orkuveitunum og auðlindunum sem hafa verið í þeirra umsjá.  Það verður best gert með því að festa sameign þjóðarinnar á auðlindunum í lög og tryggja að orkuveiturnar verði áfram í eigu ríkis og sveitarfélaga.

Reykjavík, 13. september 2007. 

Nánari upplýsingar veitir

Árni Þór Sigurðsson, form. sveitarstjórnarráðs VG

Sími: 6939310.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica