Fréttir

Kjör starfsfólks á hjúkrunar- og dvalarheimilum verði bætt

6.4.2006

Þingflokkur Vinstri grænna beinir þeim eindregnu tilmælum til ríkisstjórnarinnar að veita þegar í stað fjármagni til hjúkrunarheimila og dvalarheimila aldraðra svo bæta megi kjör þess starfsfólks sem lægst hefur launin. Fyrirsjáanleg er mjög alvarleg mannekla á þessum stofnunum því hvorki fæst fólk þar til starfa, né helst fólk við í starfi, vegna bágra launakjara og mikils vinnuálags. Mikilvægi þeirra starfa sem unnin eru  á hjúkrunarheimilum ber að viðurkenna enda hafa þau gildi fyrir þjóðfélagið allt.  Hér er um að ræða umönnun við gamalt fólk, sem á það skilið að fá að eyða ævikvöldinu með reisn, fólkið sem byggt hefur upp það samfélag sem við nú njótum, og það er brýnt að framlag þeirra til uppbyggingar samfélagsins sé viðurkennt með því að tryggja þeim sem annast umönnun þeirra við leiðarlok góð kjör. Þá ber að hafa í huga að hér er að stærstum hluta um kvennastörf að ræða og það hlýtur að vera í anda markmiða um jafnrétti kynjanna að leiðrétta það misrétti sem konur í illa launuðum umönnunarstörfum hafa mátt búa við.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð hvetur fjármálaráherra til þess að efna þegar í stað til fundar með forsvarsmönnum þeirra stofnana, sem í hlut eiga um þann vanda sem nú blasir við. Hann er fyrst og fremst fjárhagslegs eðlis og ábyrgðin er hjá ríkisstjórninni.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica