Fréttir

Á móti lýðræði: Ísrael, Ísland, ESB og Bush

10.4.2006

?Athygli vakti við umræðu um utanríkismál á Alþingi í vikunni hve mjög Geir H. Haarde endurómaði áherslur bandarískrar utanríkisstefnu í ræðu sinni. Þannig réðst hann á Íran og lagði lykkju á leið sína til þess að gagnrýna nýkjörna stjórn í Palestínu. Sem kunnugt er fóru Hamas samtökin með sigur í nýafstöðnum kosningum í Palestínu. Ekki var það Ísraelsstjórn að skapi. Reyndar er það ekki að undra því Hamas hafa ekki viljað viðurkenna Ísraelsríki. Að þessu leyti er líkt komið á með Hamas og stjórnvöldum í Ísrael því hin síðarnefndu hafa ekki viljað viðurkenna tilvist Palestínu, eins og hún var ákveðin á vettvangi Sameinuðu þjóðanna eftir hin blóðugu átök á árunum 1948 ? 49."

Þannig hefst grein Ögmundar á heimasíðu hans undir yfirskriftinni ?Á móti lýðræði: Ísrael, Ísland, ESB og Bush?. Með greininni birtast myndir sem sýna á sláandi hátt hvernig landamæri Palestínu hafa breyst allt frá 1945, en núverandi stjórn í Ísrael ætlar Palestínumönnum innan við 10% af sundurtættri Palestínu.

 

Sjá nánar á www.ogmundur.is

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica