Áskorun til ríkisstjórnarinnar vegna klámráðstefnu
Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður hefur sent ríkisstjórninni eftirfarandi áskorun í tilefni af fyrirhugaðri kaupstefnu klámframleiðenda hér á landi:
Ég undirrituð skora á ríkisstjórn Íslands að grípa til aðgerða gegn fyrirhugaðri kaupsstefnu klámframleiðenda, sem halda á í Reykjavík 7. ? 11. mars nk. Af fyrirliggjandi upplýsingum um kaupstefnuna og atburði tengda henni kemur í ljós að hér er um að ræða stefnumót margra öflugustu klámframleiðenda í heimi, fyritækja sem hafa gríðarlegar tekjur af því að markaðssetja og selja konur.
Íslensk löggjöf leggur refsingu við innflutningi, sölu og dreifingu á klámi (sjá 210. gr. almennra hegningarlaga*). Það hlýtur því að vera eðlilegt að hvetja yfirvöld, af þessu tilefni, til að vera á verði og grípa til nauðsynlegra ráðstafana svo ekki komi til lögbrota af því tagi sem þar er getið.
Íslensk stjórnvöld eru einnig skuldbundin samkvæmt alþjóðlegum sáttmálum til að beita sér í baráttunni gegn mansali. Það er alkunna að klámiðnaðurinn er viðriðinn refsiverða starfsemi af því tagi og því teljum við nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld bregðist nú við í þágu þeirra kvenna og barna sem slíkir samningar eiga að vernda. Þegar heimasíða kaupstefnunnar er skoðuð http://www.snowgathering.com/ sést glögglega hvers konar fyritæki það eru sem að henni standa. Á tenglum inn á heimasíður þeirra blasa m.a. við tilboð um kynlíf með börnum, sem hvorki kunna ensku eða vita nokkuð um það á hverju þau eiga von.
Íslensk stjórnvöld hafa áður beitt sér á svipaðan hátt og hér er óskað eftir. Það gerðu þau árið 2004 þegar komið var í veg fyrir að fjöldi vítisengla kæmi inn í landið til hátíðarhalda, sem þá voru fyrirhuguð. Í því tilfelli sem hér um ræðir ættu að gilda sambærileg rök og er því hvatt til aðgerða sem forðað geta því að fyrirhuguð kaupstefna klámframleiðenda verði haldin á Íslandi.
Kolbrún Halldórsdóttir
8. þingmaður Reykjavikurkjördæmis norður

