Kosningahappdrættið - útdráttur
Þann 7. júní var dregið í Kosningahappdrættinu - upplýsingar um hvernig nálgast má vinninga er að fá á skrifstofu Vinstri grænna, s: 552 8872, netfang vg@vg.is. Útdrátturinn fór sem hér segir:
100 - Handhægur heimilisiðnaður ...: Steinunn Þóra Árnadóttir og Stefán Pálsson kenna undirstöðu barmmerkjagerðar. Eitt hundrað merki fylgja, með áletrun eða mynd að eigin vali. Kaffi og meðlæti. Fyrir fimm.
306 - Hvað er svo glatt ...: Grillveisla með öllu tilheyrandi í garðinum hjá Ögmundi Jónassyni, margrómuðum meistara grillsins. Fyrir átta.
653 - Viðfjarðarundur og önnur austfirsk ...: Skemmtisigling frá Norðfirði með Árna Steinari Jóhannssyni og Sigríði Stefánsdóttur. Svínasteik að dönskuskotnum hætti. Gisting. Fyrir fimm.
1051 - Skák og ...: Kvöldstund við taflborðið með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur. Manngangur kenndur, ef þarf. Léttar, hjartastyrkjandi veitingar.
1429 - Betri er einn fugl í sigti ...: Siglt út á Faxaflóa til svartfuglsveiða með Sigurmari K. Albertssyni hrl. Afli fylgir í neytendaumbúðum, ásamt leyniuppskrift. Fyrir þrjá.
1508 - Handgerðar ljóðalistaverkabækur eftir Birgittu Jónsdóttur. Tíu bóka sería í sérútgáfu fyrir happdrættið.
1600 - Upp með skóna ...: Dagsferð með Ingólfi Á. Jóhannessyni. Gengið um Suðurárbotna. Nesti og veitingar í göngulok. Fyrir fjóra.
2359 - Enn finnst fljót og ef til vill ormur ...: Óvissuferð um Fljótsdalshérað með Þuríði Backman. Krásir að hætti heimamanna. Fyrir fjóra.
2638 - Um blíðan Borgarfjörð ...: Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir býður í sumarhús sitt í Reykholtsdal. Gönguferð um Hallmundarhraun og fossbúar sóttir heim. Grillveisla í lokin. Fyrir fjóra.
2668 - Að lífið sé skjálfandi ...: Svarfaðardalur sóttur heim í boði Ingibjargar Hjartardóttur og Ragnars Stefánssonar. Kvöldverður að svarfdælskum hætti. Gisting. Fyrir fimm.
3284 - Vængjasláttur í upphæðum ...: Sagnastund með Einari Má Guðmundssyni rithöfundi.
3323 - Siðfræðinámskeið í boði Jóhanns Björnssonar heimspekings. Léttar, spaklegar veitingar í lokin. Fyrir tíu.
3415 - Helgardvöl fyrir fjölskyldu í gestahúsi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Frjáls afnot af hestum, fiskibáti og öðrum afþreyingarmöguleikum, þar með talinn fjallajeppi. Í boði Steingríms J. Sigfússonar og ábúenda.
3470 - Pandóruboxin opnuð ...: Bragi Kristjónsson býður til sögustundar í Bókinni ehf. – fornbókaverslun.
4350 - Í sátt við skattmann ...: Drífa Snædal gengur frá skattframtölum fimm einstaklinga.
4350 - Sigling um Breiðamerkurlón ...: undir leiðsögn Kristínar G. Gestsdóttur. Nesti á leiðinni.
4842 - Björn Valur Gíslason býður í sjóstangaveiði frá Ólafsfirði. Roðlaust og beinlaust grillað í ferðalok. Reiki og orku-punkta-jöfnun að hætti húsráðenda. Fyrir fimm.
5023 - Fögur er hlíðin ...: Gisting og morgunverður í Smáratúni í Fljótshlíð í boði Arndísar S. Sigurðardóttur. Fyrir tvo.
5372 - Höll sumarlandsins ...: Atli Gíslason býður í Gryfjuna sína í Grímsnesinu. Gengið um grundir, golfkylfur mundaðar og grill. Fyrir átta.
5590 - Heim að Hólum ...: Dagsferð í boði Jóns Bjarnasonar á slóðir biskupa og bændahöfðingja. Köldverður að hætti Hólamanna, með ívafi frá Ströndum. Fyrir fimm.
5612 - Hver á sér fegra fjallalamb ...: Óvissuferð um N-Þingeyjarsýslu með Stefáni Rögnvaldssyni bónda. Nesti og alnorðlensk hangikjötsveisla í lokin. Fyrir fjóra.
6270 - Skrúðsbóndinn sóttur heim ...: Skoðunarferð í Skrúð, úti fyrir Fáskrúðsfirði, í boði Magnúsar Stefánssonar. Nesti á leiðinni. Fyrir fimm.
6727 - Fröken Reykjavík ...: Óræðar slóðir miðborgarinnar þræddar með Birnu Þórðardóttur. Hressing á leiðinni og besta lasagne norðan Modena í lokin! Fyrir sex.
6988 - Á vettvangi glæps ...: Katrín Jakobsdóttir leiðir gesti um refilstigu Reykjavíkur. Veitingar að hætti háskakvenda. Fyrir átta.
7089 - Ári minn og kári ...: Þór Vigfússon og Hildur Hákonardóttir bjóða á draugaslóðir í Flóanum. Draugasetrið á Stokkseyri sótt heim. Fyrir fimmtán.
7689 - Um Eyjar og sund ...: Lystisigling við Vestmannaeyjar, um víkur og hella með Ragnari Óskarssyni. Léttar veitingar á leiðinni. Fyrir tvo.
7814 - Hott, hott ...: Hestaferð um Eyrarbakkafjörur með Ölmu Lísu Jóhannsdóttur. Óvæntar uppákomur og grillað í lokin. Fyrir fjóra.
8272 - Sú rödd var svo fögur ...: Upptaka á uppáhaldslaginu inn á geisladisk. Heiða (Ragnheiður Eiríksdóttir) og Elvar Sævarsson stjórna upptöku og spila undir. Keflvískar kaffiveitingar.
8300 - Í upphafi var orðið ...: Hlynur Hallsson spreyjar vel valin slagorð á vegg.
8325 - Myndverk eftir Mireyu Samper.
9013 - Góða veislu gjöra skal ...: Ingi Rafn Hauksson veitingastjóri kennir galdurinn að baki hinu fullkomna matarboði. Fyrir fimm.
9133 - Gisting í Flatey á Breiðafirði fyrir fjölskyldu í boði Álfheiðar Ingadóttur. Kvöld- og morgunverður að Vegamótum.
9266 - Gengið á gúmmískóm ...: Sagnaferð um Lakagíga með Kára Kristjánssyni landverði. Nesti á leiðinni. Fyrir tíu.
9514 - Dansi, dansi dúkkan mín ...: Gleðistund með dídsjey Andreu J.

