Opnunartímar kosningamiðstöðvar VGR
Frá og með 18. apríl og fram að kosningum verður kosningamiðstöð Vinstri - grænna í Reykjavík, að Suðurgötu 3, opin sem hér segir:
virka daga: 12:00-21:00
laugardaga: 11:00-18:00
sunnudaga: 13:00-16:00
Þessir tímar eru miðaðir við almenna starfsemi og geta því tekið breytingum eftir því sem við á og verður það tilkynnt hér á
póstlistanum.
Gestgjafi kosningamiðstöðvarinnar er Guðmundur Magnússon. Fleiri félagar þurfa að koma að opnuninni og eruð þið hvött til að koma við á kosningamiðstöðinni og skrá ykkur á vaktir á auglýstum afgreiðslutímum hennar eða hafa samband við Guðmund í síma 552 88 71 milli 12:00 og 17:00 á virkum dögum.
Næstkomandi fimmtudag er Sumardagurinn fyrsti. Vinstri - græn í Reykjavík munu fagna sumri við kosningamiðstöðina á Suðurgötu með hátíðardagskrá frá 14:00 til 16:00. Þar verður grillveisla, lifandi tónlist, leikir fyrir börnin, krassandi pólitík o.fl. Við hvetjum alla til þess að fagna sumri með okkur.
Með kærri kveðju
Vinstri - græn

