Fréttir

Vinstri græn vilja tafarlausar aðgerðir stjórnvalda

22.5.2007

Vinstri græn í Ísafjarðarbæ vilja að gripið verði til tafarlausra aðgerða af hálfu stjórnvalda og Ísafjarðarbæjar til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búsetuflótta frá Flateyri. Þetta kemur fram í ályktun sem félag Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Ísafjarðarbæ hefur sent frá sér. Í ályktuninni segir jafnframt að mikilvægt sé að íbúar sjávarbyggða vítt og breitt um landið fái um það skýr skilaboð frá stjórnvöldum hvernig bregðast eigi við aðstæðum sem nú eru uppi á Flateyri vegna fyrirhugaðra sölu veiðiheimilda og lokunar fiskvinnslufyrirtækisins Kambs. Þessar aðstæður gætu blasað við öðrum sjávarbyggðum hvenær sem er við núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi sem er alfarið á ábyrgð stjórnvalda. Vinstri græn segja kröfu íbúa sjávarbyggðanna hljóta að vera þá að grunnréttur þeirra til auðlinda fiskimiðanna sé tryggður til frambúðar og þar með atvinnu- og búsetuöryggi.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica