Alvarleg staða á Flateyri, bréf til Sturlu Böðvarssonar
Hér með er óskað eftir að kallað verði til fundar þingmanna kjördæmisins til að fara yfir þá alvarlegu stöðu sem komin er upp á Flateyri með sölu á veiðiheimildum og lokun Kambs, aðal fyrirtækisins á staðnum og eins stærsta vinnustaðar á Vestfjöðrum. 120 manns í 300 íbúa byggðarlagi missa atvinnuna.
Ljóst er að stefna stjórnvalda í sjávarútvegsmálum og ruðningsáhrif stóriðjustefnunnar bíta nú atvinnulíf og búsetukjör Flateyringa. Framtíð annarra sjávarbyggða á Vestfjörðum er hér einnig í húfi ef ekkert verður að gert. Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framnboðs hafa ítrekað varað við afleiðingum þessarar stefnu og ekki hvað síst í nýlokinni kosningabaráttu.
Samt láta einstakir stjórnarþingmenn og ráðherrar svo í fjölmiðlum að þetta komi þeim á óvart sem sýnir best hve veruleika firrtir þeir eru.
Þingmenn Vinstri grænna hafa krafist þess að hluti fiskveiðiheimildanna verði festur við byggðirnar og grunnréttur íbúanna til auðlindarinnar verði tryggður.
Það vekur óneitanlega upp spurningar hversvegna fyrirhugaðri lokun Kambs skuli vera haldið leyndri fram yfir kosningar. Ef til vill hafa forsvarsmenn fyrirtækisins vænst annarra kosningaúrslita og breyttar stefnu í sjávarútvegs og byggðamálum eða var verið að hlífa þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem hefðu átt erfiðar uppdráttar í kosningabaráttunni ef þessi staða hefði opinberast 3 dögum fyrr.
Framtíð atvinnulífs og búsetu á Vestfjörðum, sem er mjög háð sjávarútvegi hangir víða á bláþræði ekki aðeins á Flateyri heldur einnig í öðrum sjávarbyggðunum í Fjórðungnum vegna stefnu stjórnvalda. Á þetta hafa heimamenn margítrekað bent á en stjórnvöld daufheyrst við.
Stjórnvöldum ber skylda til að grípa þegar í stað til aðgerða sem duga til að koma í veg fyrir fjölda atvinnuleysi og brotthvarf fyrirtækja frá Flateyri en tryggja þess í stað öflugar fiskveiðar og vinnslu á svæðinu.
Eðlilegt er að þingmenn kjördæmisins fylgi því eftir að svo verði gert.
Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi

